Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

Mál nr. 532/2023-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 532/2023

Mánudaginn 22. janúar 2024

A

gegn

Reykjanesbæ

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 6. nóvember 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun velferðarsviðs Reykjanesbæjar, dags. 4. apríl 2023, um að synja umsókn hennar um stuðningsþjónustu.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 31. janúar 2023, sótti kærandi um stuðningsþjónustu frá Reykjanesbæ í formi aðstoðar við almennt heimilishald. Umsókn kæranda var synjað með bréfi velferðarsviðs Reykjanesbæjar, dags. 8 febrúar 2023. Kærandi áfrýjaði þeirri ákvörðun til áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjanesbæjar sem tók málið fyrir á fundi 15. mars 2023 og staðfesti synjun velferðarsviðs. Sú ákvörðun var kynnt kæranda með bréfi, dags. 6. apríl 2023.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 6. nóvember 2023. Með erindi úrskurðarnefndarinnar, dags. 8. nóvember 2023, var óskað eftir að kærandi legði fram afrit af hinni kærðu ákvörðun. Kærandi sendi úrskurðarnefndinni afrit af tölvupósti til hennar frá starfsmanni Reykjanesbæjar, dags. 3. nóvember 2023. Í kjölfarið var óskað eftir gögnum frá sveitarfélaginu og bárust þau 15. og 27. nóvember 2023. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. nóvember 2023, var kæranda tilkynnt að kæra hefði borist að liðnum kærufresti og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum og/eða gögnum, teldi hún að skilyrði sem fram kæmu í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 gætu átt við í málinu. Svar barst ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála greinir kærandi frá því að hún þurfi virkilega á aðstoð að halda við heimilisþrif vegna veikinda sem geri það að verkum að hún geti ekki þrifið ein og hjálparlaust.

III.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun velferðarsviðs Reykjanesbæjar, dags. 4. apríl 2023, um að synja umsókn kæranda um stuðningsþjónustu.

Samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal stjórnsýslukæra berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Hin kærða ákvörðun var kynnt kæranda með bréfi velferðarsviðs Reykjanesbæjar, dags. 4. apríl 2023, en ákvörðunin var kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála með kæru, móttekinni 6. nóvember 2023. Kærufrestur samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 var því liðinn þegar kæra barst nefndinni.

Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2015 er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Með vísan til þessa er nauðsynlegt að taka til skoðunar hvort fyrir hendi séu atriði sem hafa þýðingu við mat á því hvort afsakanlegt verði talið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti eða hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, en ákvæðið mælir fyrir um skyldubundið mat stjórnvalds á því hvort atvik séu með þeim hætti að rétt sé að taka stjórnsýslukæru til efnislegrar meðferðar, þrátt fyrir að lögbundinn kærufrestur sé liðinn.

Fyrir liggur að kæranda var í hinni kærðu ákvörðun leiðbeint um kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála og um tímalengd kærufrests. Kæranda var veittur kostur á að koma að athugasemdum og/eða gögnum teldi hún að skilyrði sem fram kæmu í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga gætu átt við í málinu. Svar barst ekki.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að afsakanlegt verði talið að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Þá verður heldur ekki séð að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar. Þannig virðist ekkert því til fyrirstöðu að kærandi geti lagt inn nýja umsókn um stuðningsþjónustu.

Með hliðsjón af framangreindu er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum